Choose Language:
What are we providing for:

Geislinger er í fararbroddi á sviði hönnunar og framleiðslu á titringsdeyfum og sveigjanlegum deyfitengjum fyrir stórar bensín- og dísilvélar. Geislinger hefur jafnframt getið sér gott orð fyrir sérþekkingu á þróun yfirfærslutengja úr stáli og trefjablöndu (Gesilco) sem og eftirlitsbúnaðar fyrir snúningstitring (Geislinger Monitoring).

Vörur frá Geislinger eru notaðar á sviði driftækni og í hvers kyns drifbúnaði þar sem draga þarf úr snúningstitringi með áreiðanlegum hætti. Þær má meðal annars nota í stórum dísilvélum og rafstöðvum, skipum, lestum, vindhverflum, stórum bulluþjöppum, búkollum og gröfum.